Við, um okkur, frá okkur....

Anna Þorleifsdóttir,
06.02.84
Viktoría Lív Ívarsdóttir,
18.10.05

Búsettar á Drekavöllum í Hafnafirði ásamt fjölskylduföðurnum og námsmanninum, Ívari Haukssyni :)

Msn: annathorleifs@hotmail.com
Viktoría Lív á Barnalandi: http://viktorialiv.barnaland.is

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

FLUTT!!

16. nóvember 2006 klukkan 17:56
Ég tek ekki sénsinn á því að kerfið hérna hrynji ekki aftur þannig að ég er bara flutt, komin með nýja og flottari heimasíðu - kíkiði þangað!

http://123.is/annathorleifs
Anna Þorleifs.
Engin athugasemd

Veiii...

14. nóvember 2006 klukkan 01:59
Varð bara að koma með smá auka færslu og monta mig af því að Viktoría labbaði hjálparlaust á milli baðherbergisins og sjónvarpsherbergisins! alveg heil 10-12 skref, og ég er svoooo stolt mamma núna! Hlæjandi
Anna Þorleifs.
1 athugasemd

Mánudagsþreytan að fara með mig

13. nóvember 2006 klukkan 18:38
Úff já, er búin að vera geispandi hérna í allan morgun, held varla augunum opnum.... Hissa Spurning um að reyna að fara aðeins fyrr að sofa á kvöldin, kannski!

Annars er nú byrjuð ein skemmtilegasta vika ársins, öðru nafni fyrri prófvika! (þær eru ss tvær) Núna fyrst byrjar fjörið sko.
Ég get þó huggað mig við það að á föstudaginn í næstu vikur er þetta búið! vúhúú.... Hlæjandi Þá verður nú e-ð fagnað.

Ég var svo að setja smá jólabakgrunn á síðuna hennar Viktoríu, voða sætur. Set kannski eitthvað ennþá jólalegra þegar nær dregur.
Er annars komin í svo mikið jólaskap að mig langar helst bara að fara heim og föndra jólakort, borða smákökur og drekka heitt kakó og hlusta á jólasöngva í útvarpinu! Brosandi En það er víst ekki byrjað að spila þá alveg strax.

Var að fletta yfir albúmin hennar Viktoríu og fann þessa skondnu mynd af henni frá síðustu jólum...

http://viktorialiv.barnaland.is/album/img/34769/20051228193823_0.jpg
...steinsofandi í jólakjólnum Hlæjandi
Anna Þorleifs.
2 athugasemdir

Sunnudagur og allt í drasli!

12. nóvember 2006 klukkan 18:38
Jæja, ég skellti mér aðeins út á lífið í gærkvöldi, mjög gaman.
Byrjaði á afmæli hjá Tinnu, þar var borðaður æðislegur matur og enn meiri matur! farið í actionary, pakkaleik og sing star.
Um eittleitið var svo farið í bæinn. Ég, Guðrún og Kristín tókum saman leigubíl og byrjuðum á Óliver, troðið - eins og alltaf þar!
Fórum svo yfir á Vegamót, en ég var ekki lengi þar áður en ég fór heim.
Þurfti að bíða í ca þrjú korter í leigubílaröðinni! geðveiki! þetta var, liggur við, eins og á menningarnótt, eða e-u álíka. Svo var svo óóógeðslega kalt að ég var án gríns hætt að finna fyrir höndunum á mér og var eiginlega ennþá frosin þegar ég kom heim, og það var svooo næs að leggjast upp í rúm!
En kvöldið, svona yfirhöfuð, var bara mjög skemmtilegt og vel heppnað. Brosandi

Viktoría leyfði okkur svo að sofa til hádegis í dag, get ekki kvartað yfir því! Glottandi Ívar reyndar svaf pínu yfir sig, ætlaði að vera löngu farinn uppí skóla að læra.
Þegar ég kom fram og fór að horfa í kringum mig sá ég að húsið er eins og eftir loftárás! Sjónvarpsherbergið er í rúst! Ótrúlegt hvað Ívari og Viktoríu tekst auðveldlega, svona í sameiningu, að sóða allt út!
Ég gæti ss eytt öllum deginum í að taka til, þrífa og setja í þvottavél, eeeen ég veit ekki hvort ég nenni því.
Svo var þurrkarinn e-ð að taka uppá því að bila, sem er ekki gott mál!

Ég ætla allavega að slappa aðeins lengur af áðuren ég fer að gera e-ð gáfulegt...
Anna Þorleifs.
1 athugasemd

Komin helgi, hallelúja!

11. nóvember 2006 klukkan 01:12
Loksins komin helgi, eða loksins - vikan leið reyndar mjög hratt eins og alltaf...

Viðbjóðslegt veður úti! Fórum í Bónus í dag, fukum úr bílnum og inn í búðina - í bókstaflegri merkingu!! og síðan þá er búin að vera svona kuldahrollur í mér og er ennþá.
Við Viktoría lögðumst strax undir sæng þegar við komum heim og fengum okkur smá lúr, voða kósí, en um leið og ég fór fram aftur varð mér aftur kalt! *brrrr...*
Ég er bara hálf fegin að þurfa ekkert að fara út í kvöld, ætla bara að vefja mig inn í teppi fyrir framan tölvuna/sjónvarpið í kvöld á meðan Ívar þarf að dröslast í skólann eins og öll önnur kvöld.

Á morgun er svo bara partí og meira partí!
Eins árs afmæli kl.3 og svo 21 árs afmæli kl.7, matur og kósíheit. Hlakka mikið til! Brosandi Tengdó ætlar að redda okkur enn eina ferðina og hafa Viktoríu smá á morgun svo ég komist nú í afmælið hennar Tinnu.

Reyndar er ég farin að hafa smá áhyggjur af mér þessa dagana! Shopaholoci-ið ég er búin að fara í bæði Smáralindina og Kringluna til að leita mér að bol/kjól fyrir morgundaginn og fann ekki neitt!! Öskrandi Veit ekki hvað er að mér! Ætla samt að gera aðra tilraun á morgun, fara aftur í Smáralindina því ég skal! finna mér eitthvað fínt fyrir afmælið hennar Tinnu, ég skal!!

En jæja, mér er svo kalt að ég eiginlega meika ekki að skrifa meira..... Óákveðinn
Segi bara GÓÐA HELGI!! allir saman!
Anna Þorleifs.
1 athugasemd

Þreytt og kvefuð

09. nóvember 2006 klukkan 18:18
Viktoría virðist hafa gefið okkur foreldrunum restarnar af kvefinu sínu, því við vöknuðum bæði alveg stífluð og með hálsbólgu í morgun, en hún er allavega orðin hress sjálf.
Hún sofnaði svo seint í gærkvöldi og ég þurfti mikið að slást við hana, ekki það skemmtilegasta sem ég geri, þannig að ég svaf ekki næstum því nóg er svooo þreytt núna! á virkilega erfitt með að halda mér vakandi.

Ég er mikið að spá í að kíkja í Smáralindina á eftir og gá hvort ég finni mér bol fyrir helgina, svo langar mig mikið að kíkja í nýju skóbúðina í Garðabænum, Sappos. Spurning hvort það gæti leynst eitthvað sniðugt þar.

Annars hlakka ég bara mikið til helgarinnar! Tvö afmæli á laugardaginn, hvorki meira né minna.
Eins árs afmæli um daginn hjá henni Eygló Huldu og svo matarboð og fylle..... meina, fínerí! um kvöldið Glottandi hjá henni Tinnu minni. Ég hlakka svooo til að fara út og sletta aðeins úr klaufunum, eftir öll þessi einmanalegu kvöld mín undanfarið.

Haukur og Ásdís komu heim í dag, ætli maður kíki ekki eitthvað á þau í dag/kvöld, ég efast ekki um að þau langi til að hitta uppáhalds barnabarnið sitt! Brosandi
Anna Þorleifs.
Engin athugasemd

Everything's cool

09. nóvember 2006 klukkan 02:44
* Ég mætti aftur í vinnuna í morgun og Viktoría fór til Birnu. Var reyndar ekki alveg sátt við að vera skilin eftir 4 daga afslöppun, nánast bara með mér! en hún jafnaði sig fljótt þegar hún sá hina krakkana.

* Brjálað að gera í vinnunni...

* Haukur og Ásdís koma til landsins á morgun, spurning hvor verður ánægðari að sjá þau; Garpur eða Viktoría?! Hlæjandi

* ANTM og L Word í sjónvarpinu í kvöld.....

Þetta er nú allt og sumt.
Skelli hérna einni baðmynd af henni Viktoríu minni  (btw, komnar helling af nýjum myndum á síðuna hennar!) Brosandi

http://viktorialiv.barnaland.is/album/img/34769/20061108200812_2.jpg
Anna Þorleifs.
1 athugasemd

Veikindum lokið!

08. nóvember 2006 klukkan 02:52
...eða ég vona það allavega!
Við mæðgurnar vorum allavega bara heima í dag, svona til að ná síðustu kommunum burt, og svei mér þá ef kvefið er ekki eitthvað að lagast líka!
Þannig að Viktoría ætti að geta farið til Birnu á morgun, enda held ég að henni hundleiðist að vera svona mikið inni, ótrúlegt hvað hún getur orðið pirruð af því að komast ekkert út - en maður er svosem þannig sjálfur líka.

Hef annars ekkert að segja.....  gríslingurinn sofnaður, Ívar farinn uppí skóla og ég og talvan verðum bara veit hvor annarri félagskap á þessum síðustu og verstu tímum! Hlæjandi

"Bara" 17 dagar þar til ég fæ kærastann minn aftur úr klóm óvinarins - aka HR! Glottandi
Anna Þorleifs.
Engin athugasemd

Og enn meira af sýklalyfjum!

07. nóvember 2006 klukkan 01:38
Við fórum með músina okkar til læknis í dag því hún er ennþá með hita, vaknaði með 38.5°c í morgun sem er víst ansi hár morgunhiti á 4 degi veikinda hjá svona litlu barni.
Hann fann hinsvegar ekkert "að" henni, annað en slím í lungunum og vökva sem er að leka úr eyrunum (rörin eru þá allavega að virka). Hann sagði hinsvegar að þegar flensa er búin að standa svona lengi yfir hjá litlu barni eru sýklalyf það eina sem virkar þannig að hún er núna komin á inn 4.pensilínkúr, þessi elska. Eins gott að hann nái kvefinu almennilega úr henni, því þetta eru orðin pínu þreytandi veikindi - líka fyrir okkur foreldrana sem fáum einstaklega lítinn nætursvefn þessa dagana. Óákveðinn
Litla matargatið okkar er svo búið að lifa á ávaxtasafa, vatni, mjólk og stílum síðan á föstudag! Hún hefur sama og enga matarlyst og við þurfum liggur við að plata matinn ofan í hana - og ekki eins og hún megi við því sko! Hlæjandi
Viktoría fékk ss. fyrsta skammtinn af pensilínu í kvöld og við eigum nú að halda henni inni á meðan þau eru að byrja virka (tekur ca sólarhring) þannig að hún fer heldur ekki til Birnu á morgun, við mæðgurnar verðum þá heima saman og reynum að slappa af og hvíla okkur.

Sendið okkur bara batnaðarkveðjur svo við losnum við þessi veikindi sem fyrst!
Anna Þorleifs.
2 athugasemdir

Samviskubit yfir því að vera í vinnunni en ekki heima

06. nóvember 2006 klukkan 16:11
er að naga mig afskaplega mikið núna! Skömmustulegur
Viktoría er enn lasin og Ívar er heima með hana. Hún var hinsvegar ekki sátt við það að sjá ekki mömmu sína þegar hún vaknaði og er búin að gráta núna í tvo tíma og pabbinn má ekkert gera fyrir hana. Fýldur
Á meðan sit ég í vinnunni, með samviskubit yfir því að vera hérna en ekki heima með Viktoríu og leyfa Ívari að læra í friði - prófin byrja í næstu viku og stressið er alveg farið að gera vart við sig!
Ég er búin að heyra nokkrum sinnum í Ívari eftir að ég mætti í vinnuna og alltaf heyri ég í gríslingnum mínum grátandi fyrir aftan hann og lætur sér ekki segjast, sama hvað Gráta
Oh... vildi að ég gæti skotist heim til að róa stelpuna mína, en það er víst ekki í boði þannig að ég verð bara að þrauka til hálf2 og sömuleiðis Ívar.
Skemmtileg byrjun á vinnuvikunni! Öskrandi
Anna Þorleifs.
Engin athugasemd